Sumarið er tíminn!:D
Guð annars er margt búið að gerast, fór í leikhús með Vigdísi minni í april á Fló á skinni og vá það var æði!:D Tekið smá djamm með Kolbrúnu minni og skemmtilegheit!:) Svo var Diskóhátið í eyjum þar sem var farið í Singstar og dansið af sér fæturnar á æðislegu balli sem endaði þó með smá höfuðverki daginn eftir:D hehe
Svo kom Kolbrún í heimsókn til mín aðra helgina í Maí og var það rosalega gaman! var slappað af skellt sér í pottana og spjallað og spjallað og auðvitað fengið sér smá blöndu á meðan sungið var í singstar í hmmm 5 tíma minnir mig!:D vá það var gaman!

Helgina eftir það var farið á Akureyri í sól og blíðu og er brúnkann enn til staðar sem kom þá!;) En það var sko algjört sullerí á manni úff...var samt mjög góð sérstaklega þar sem blóðnasir komu allt of mikið við sögu og skemmdu algjörlega fyrir aðalkvöldinu þar sem maður var kominn heim um 2 leytið:( En var rosa gaman að fá að skoða akureyri almennilega! og stóðu strákarnir sig rosa vel í björgunarleikunum!:D
Síðan var komið að útskriftinni hjá honum Ásgeiri! :* En hann lauk stúdentsprófinu núna í Maí og var haldin veisla þar sem ég át frá kl. 15 - 18 missti mig algjörlega í heita brauðinu, en það er bara svoooo gott
hélt Ásgeir svo smá partý um kvöldið og var endað niðri Svölukoti þar sem Karóki réð völdum! hehe var síðan kikt aðeins inna Volcanó en vorum ekki komin það seint heim og loksins! já loksins! var komið að Ásgeiri að finna fyrir smá timburmönnum!;) enda var hann vel í því og gott tilefni til!:D Svo fyrir 2 vikum og 3 dögum fór Ásgeir uppá land til að halda áfram að fljúga og kikti ég til hans eina helgi þar sem var keyrt til kleifarvatns og labbað uppá hellutinda? held að það heitir það og svo á sunnudeginum uppá Esjuna!:) kikti svo aðeins til Guðrúnar og var spjallað og spjallaðmeðan Ásgeir flaug:) En hún var að fara til Frakklands daginn eftir í heilann mánuð og ég náttla varð að fá að hitta hana allavega einu sinni í sumar!;)
Ásgeir kom svo heim í gær með Hlyn, Stelllu og Hilmi og ætla þau að vera hjá okkur um helgina verður það fróðlegt :D Svo næstu helgi er plönuð útileiga í Þórsmörk!=) og svo Laugarvegurinn í Júli þannig að maður verður að halda áfram að vera duglegur í ræktinni svo maður meiki laugaveginn;) hehe annars er maður bara að vinna og vinna :) Er búin að vera að hjóla í vinnuna núna seinustu 2 vikur gengur voða vel hehe en veðrið er líka búið að vera dásamlegt!:D
En gleðilegt sumar!;) farið i sem flestar útileigur og njótið þess að það er sumar!:)
spurning dagsins....
Þetta er spurning sem ég væri svooo til í að fá svar við, þótt ég efast um að fá nokkurntímann svar við henni....
Annars bara er maður að vinna og vinna, á bara 6 vaktir eftir í skýlinu, get ekki beðið!:) Vorum að enda við að borða kjúklingabringur og í eftirrétt var frönsk súkkulaði kaka:p bara nammi sko!!:D
Seinustu helgi voru björgunarleikar haldnir í eyjum sem tókust bara vel finnst mér og endaði það með grilli og öllu sem því fylgir;) hehe, ekki má gleyma Sing star en maður söng sig sko vel hása og endaði á því að klára allann bjórinn (nema 1) inna kvennó í spjalli:o hehe, þannig að ekkert pöbbarölt var á okkur en það þýðir ekki að mr. þynnka hafi ekki látið sjá sig...úff! en var sem betur fer orðin skárri áður en ég fór að vinna kl. 5 =)
Fengum svo óvænta næturgesti á mánudagskvöldinu en Styrmir og Árni komu til eyja til að ná í bíllinn hans Árna og bönkuðu þau uppá og báðu um gistingu og þar sem þetta var nú einu sinni bróðir minn þá gátu við ekki neitað þeim;):D
Svo er Ásgeir barasta að fara á sjó á mrg eða hinn og kemur aftur í kringum föstudaginn langa held ég, en laugardaginn 11 april ætlum við að skella okkur í páskaferð eða páskagöngu frekar og er áætlunin fimmvöruháls með smá stoppi á Eyjafjallajökul ef veður leyfir:)
Er voða e-ð ekki í stuði fyrir blogg núna....en endilega svarið spurningunni ef þið hafið e-ð svar...:)
Lórey Rán....
Seinasta helgi:)
Á sunnudeginum skelltum við okkur til pabba og Sirrý að kikja á nýja húsið þeirra og það er bara flott!:) Ekki skemmdi heldur fyrir þessu 5 litlu hvolpar sem þau eru að passa! algjörar rúsinur!:D Fórum svo úti Hveró til að ná í Styrmi og þar sem ég þurfti nauðsynlega að pissa stoppuðum við á Esso og hitti ég þá ekki barasta hana Guðrúnu!! bara æðislegt! og ótrulega fyndið! hitti einmitt lika Tinnu á laugardeginum þar sem hún var að vinna í Oasis hehe hitti allavega helling af fólki um helgina sem var bara frábært!!:D Samt alveg þónokkrir sem maður hefði viljað hittta líka en bara svo takmarkður tími og svo margir sem eru líka bara uppteknir:)
Svo á mánudag skelltum við Ásgeir okkur í göngu uppá heimaklett í þessu dásamlegra veðri og var þá! tókum við með okkur nesti og heitt kakó! ótrulega kósý!! Held samt að Ásgeir hafi ekki verið nógu sáttu við mig þegar eldri hjón tóku frammúr okkur með hundi sínum:P hehe en ég var allavega bara í skemmtigöngu engu kapphlaupi:p bara fegin að enginn annars tók frammúr okkur hehe, en fórum aðra leið uppá heimaklett heldur en seinast og var það bara stemmari:) svo náttla kvittaði maður í gestabókin og sá ég þá að við fórum seinast upp 6. júni á seinasta ári hehe kominn tími til að fara aftur uppá sko fyrir löngu!:D En Heimaklettsgangan var sko min líkamsrækt fyrir mánudag:p var að deyja úr harðsperrum í gær á rassinum! hehehe
Erum svo að fara í bústað næstu helgi með foreldrum og systrum hans Ásgeirs sem verður bara æði! hlakka ekkert smá til að slappa af með góða bók!:) hehe en förum við með fyrri á föstudeginum og svo heim á sunnudeginum verður algjört æði! vona bara að veðrið verði jafn gott og var seinasta laugardag/mánudag!:D
En þetta er orðið gott í bili:)
Kvitta takk!:D
Lórey
Svoo þreytt....
Annars gengur bara allt vel held ég....er bara að vinna og vinna og vinna, vann alla seinustu helgi stemmari eða þannig, og get ekki beðið eftir að hætta í skýlinu farin að telja niður dagana en er einnig farin að telja niður dagana í 80's ballið með Palla sem verður hérna í eyjum 1 mai!!:D:D hlakka endalaust til samt var Viktoría að benda mér á að það verða allavega 3 böll á undan því hehe þannig að manni mun ekki leiðast:)
Svo er bara málið að fara uppá land um helgina, ég fer á fimmtudeginum og mun Styrmir koma og ná í mig:) Annars er það sem er planað að fara í litun til hröbbu á fös og svo borða með henni og Stebbu á krúsinni:D allt of langt síðan ég hef farið þangað...síðan kemur ásgeir með seinni ferð á föstudeginum og á laugardeginum er ég að fara að eyða peningum....ætla að fara að kaupa útivistaföt og það ekkert smá magn...síðan reyndar líka gallabuxur:D 17 er vist með einhvern markað þannig að maður kikir kannski þangað ef mér tekst að draga ásgeir með;) En ef við byrjum í útilíf þá gengur það vonandi upp:D hehe langa svo lika að kikja á bókamarkaðinn í perlunni:D(A) En er búin að komast að því að vegna nisku minnar í það að kaupa útivistaföt þá bara bitnar þetta mun meira á mér þar sem ég þarf að kaupa allt í einu hehe, maður lærir af reynslunni en mér er bara smá farið að hlakka til að eyða peningum hehe allavega hluta af þeim var voða dugleg að spara og svona:)
Svo á mrg. ætla ég að elda kjúllabringur, á eftir að fá einhverja góða uppskrift hjá tengdó en mun svo skera niður kartöflur niðurí báta og elda það í ofninum, svooo gott:) fyrsta skiptið sem ég elda eftir að Styrmir fór, hann verður bara að koma aftur !:D hehe neinei tengdó eldar betri mat hehe en gaman að æfa sig endrum og eins:)
Gaman að sjá lika að fólk er að kommenta, maður er allavega ekki gleymdur;) heheh þótt að maður sé fluttur til eyja og komi voða sjaldan uppá land þá hugsar maður nú samt oft til allra:)
En langaði bara aðeins að tjá mig, hafði ekkert betra að gera þar sem maður var home alone hehe
knúsknús Lórey Rán
ps. megið alveg halda áfram að kvitta:D
SKemmtileg vika:)
Allavega dagarnir sem eru búnir af henni:p Konudagurinn var á sunnudaginn og fékk ég æðislegan blómvönd frá kallinum;* (meiraðsegja súkkulaði fylgdi:D) svo var bolludagurinn og er þetta fyrstu bolludagurinn sem ég borða sultur á bollur og það er bara alveg rosalega gott!:) Síðan kom sprengidagurinn þar sem ég borðaði saltkjöt en sleppti baunasúpunni þar sem mér finnst hún ekki góð en saltkjötið og músiin toppuðu það samt!:D síðan í gær var öskudagurinn! og var það bara snilld! Mætti kl. 11 í ljónabúningnum mínum! hehe og ég sem tók ekki nein önnur föt með mér þurfti að vera í búningnum allann daginn!:P ég samt sleppti hettunni hehe.
Facebook er búið að vera að fara þvílikt í taugarnar á mér, mér finnst þetta bara vera allt of mikill tímaþjófur og að fólk geti hangið í þessu allann daginn skil ég ekki, en um daginn þá addaði ein stelpa sem ég var með í skóla í DK mér sem vin, hún þórkalta og ég hef ekki séð hana í svona 12-13 ár og var það bara frábært og gaman!:) Eina jákvæða sem mér finnst s.s við facebook er þegar maður hittir gamla vini og getur haft samband við vini sem búa í útlöndum og svo lika til að geta sagt hæ annaðslagið og spurt frétta:) hehe
En svo er ég að fara að fá meiri vinnu í bókasafninu! er bara ánægð með það þarf því ekki að hafa áhyggjur af því að ég sé að fara að hætta í skýlinu og þyrfti kannski að finna mér aðra aukavinnu með í haust en ég held að ég sleppi alveg við það!;) Þannig að samviskubitið mitt er horfið og núna tel ég bara niður vaktirnar sem ég á eftir í skýlinu!:) Ég er einmitt að fara að vinna langa helgi núna um helgina og er ég ekkert þvílikt spennt fyrir því, en maður lifir það nú af:)
Svo fer bara að nálgast að maður komi uppá land!;) ætla að misnota skannann hennar mömmu aðeins því mér langar svo í gömlu myndirnar minar í tölvuna hehe held samt að Styrmir eða Ásgeir þurfi að hjálpa mér við það er ekki sú tæknivæddasta í heiminum:)
En þetta er bara orðið nokkuð gott, þvilik framför miðað við undanfarna mánuði:)
Dautt mætti halda það.....
Fór til dæmis á staffadjamm seinustu helgi og ég og Helena vorum einar á dansgóflinu liggur við algjör stemmari hehe, svo var einnig drukkið smávegis á laugardeginum ákvað að vera smá kærulaus þótt að þetta væri vinnuhelgi og var það bara gaman!:)
Er líka búin að vera voða dugleg með peysuna mína, á bara eftir að festa handleggina við búkinn og prjóna efsta stykkið:p hehe er svo búin að finna næstu uppskrift af peysu sem ég ætla að prjóna, langa samt að gera tátiljur og vettlinga fyrst:D kemur bara í ljós en finnst bara gaman að prjóna og hlusta á sögu á hljóðdisk:D einum of gömul sál sko!!:D hehehe en annars er Styrmir búinn að vera hjá okkur undanfarið fékk vinnu hérna í eyjum þannig að við erum búin að vera að fjarfesta í helling af eldunargræjum og svona, meiraðsegja komin með pönnukökupönnuna hennar múttu;) hehehe en bara gaman að fá hann hingað þótt að honum leiðist kannski:)
Fórum uppá land í lok janúar og gistum hjá Arnóri og Hildi bara gaman, fórum út að borða og planið var djamm en endaði bara í öllara og spil sem var bara stuð:p svo var verslað smávegis hehe ef smávegis er hægt að kalla:D og kikt austur til mömmu þar sem meiri öllari var drukkinn og spilað scrabble! voða gaman:) En þau eru núna komin aftur á selfoss bara leiga húsið við hliðiná okkar húsi frekar fyndið! Svo er pabbi og Sirrý flutt austur líka og er planið að kikja til þeirra þegar við förum uppá land næst en ætlum að fara fyrstu helgina í mars í kringum 5:) Þarf að kaupa almennilega útivistaföt fyrir páskaferðina og lika bara til að eiga hehe, og er búin að vera voða dugleg að spara fyrir það:) enda ekkert ódýrt að kaupa svona föt og sérstaklega ekki þegar maður er að kaupa allt á sama tíma hehe en fer bara ekkert oft uppá land:( var líka verið að hækka í herjólfi en er fegin að geta keypt einingar, maður sparar þó aðeins við það:)
Annars er ég nú bara ein heima núna, Ásgeir er að vinnna og klárar einhverntímann í nótt sem er svolitið óvanalegt fyrir mig hehe og get ekki haldið áfram með peysuna þar sem ég kann ekki að festa ermarnar við peysuna en ætla að fara til Guðnýjar ömmu ásgeirs á mrg og biðja hana að hjálpa mér svo ég geti klárað hana:) Svo er ekkert í imbanum núna og hef ég heldur ekki lyst á neinni óhollusta þrátt fyrir að hafa keypt einum of mikið af henni, kannski er maður bara að verað veikur aftur einsog í vikunni. Finnnst sko ekki gaman að hanga heima:(
Er annars búin að vera að hugsa e-ð um háskólanám og svona og er núna að hugsa annaðhvort um bókasafnsfræðinginn eða félagsráðgjafann, ætla bara að skoða þetta betur hef ennþá tíma hehe en ætla fyrst í flugfreyjuna, langa það svo mikið:D
Svo reynir maður bara að vera duglegur í ræktinni og vinna vinnuna vel ekki annað hægt:) Svo náttla prófa að elda e-ð nýtt og svona hehe, bara að hafa gaman af lífinu. Líka við það að vinna í bókasafni þá er maður alltaf að læra e-ð nýtt, það eru til bækur um alls konar hluti, kemur mér sífellt á óvart!:P hehe er alltaf að koma heim með hinar og þessar bækur einum of rugluð, svo bara misjafnt hvort maður les þær eða ekki hehe.
Annars væri nú alveg gaman að fá kvitt eða e-ð til að sjá hvort að fólk kiki ennþá hérna inná svo langt síðan ég bloggaði að enginn nennir að kikja lengur hvort að það sé komið nýtt blogg hehe, en er nú allavega búin að setja e-ð niður á "blað" hehe gæti verið verra:)
En komið gott:)
knúsknús! Lórey Rán
ps. Stelpur munið eftir að láta strákana dekra aðeins við ykkur á konudaginn sem er tæknilega séð í dag en þar sem ég er ekki sofnuð þá ekki fyrr en ámrg;) hehe og þið sem eigið ekki kall verið bara góðar við sjálfar ykkur!:) Ég allavega bið spennt eftir morgundeginum hehe langa í gott knús verð þá mjög sátt!:D
Nýtt blogg:)
Maður er svei mér þá duglegur eða þannig, en það er þó komið nýtt blogg núna:) Margt gott að frétta héðan úr eyjum, er til dæmis búin að ná stærðfræðinni með 9 en er reyndar ekki búin að fá lokaeinkunnina úr íslenskunni samt er ég búin að fá allar einkunnir mínar úr þeim áfanga og þegar ég legg þær einkunnir saman þá er ég með 8,91 úr þeim svo ég er bara þokkalega sátt;)
Margt og mikið samt búið að gerast eða kannski ekki margt en mikið þó hehe er búin að vera að vinna á fullu bæði í bókasafninu og á skýlinu, er búin að fara á eitt ball með honum Palla sem var bara snilld! ( fyrir utan þynnkuna deginum eftir...) Svo varð hann Ásgeir minn tvitugur á mánudag og hélt hann því uppá afmælið sitt seinustu helgi og var bara gaman! Var kaffiboð fyrr um daginn og svo smá partý um kvöldið, kiktum einnig á nýja barinn hérna í eyjum og var rifjað upp skemmtileg uppákoma sem átti sér stað fyrir nokkrum árum við laugarvatn ( eva þú ættir að vita um hvað ég er að tala;)) Svo þegar við fórum að röllta heim þá var byrjað að snjóa mesta jólasnjó sem ég veit um! Bara gaman og ótrulega jólalegt!:D Svo á afmælisdaginn sjálfann þá eldaði Guðný alveg himneskt læri og var ís í eftirrétt, spiluðum einnig trivial og var mikið hlegið!:)
Svo gerðist mín svo
djörf og fór þann 1 des niðri íþróttamiðstöð og keypti mér árskort í ræktina!(
nýta nemendaafslátt á meðan maður getur;)) beint þaðan í Axel Ó og fékk mér
íþróttabuxur og topp bara sátt. Er búin að fara alveg nokkrum sinnum en á
föstudag mun Svenni kenna mér á tækin sem eru á staðnum, er s.s bara búin að
vera að labba/skokka, hjóla og eitt annað tæki sem ég veit ekki hvað heitir því
ég vildi ekki fara að gera einhverja vitleysu á tækjum sem ég kann ekkert á:)
Jólagjafirnar eru líka næstum komnar hjá mér, verður bara vesen að koma þessu öllu
í herjólf á þriðjudag þegar ég fer uppá land en á samt ennþá eftir að kaupa þó
nokkrar gjafir sem ég geri annaðhvort fyrir eða eftir útskrift, já ég er að
fara að útskrifast núna þann 19. Des af Félagsfræðibraut! Get ekki beðið:) en
ætla ég samt bara að hafa smá kaffi heima á selfossi einhverntímann í janúar
býst ég við þarsem endubæturnar og viðgerðirnar heima í Heiðmörkinni verða
alveg örugglega ekki tilbúnar fyrir 19. Des munum við því eyða jólunum í bústað
sem verður vonandi fínt, samt frekar furðulegt að vera langt frá allri byggð,
veit ekki hvernig maður á eftir að höndla þetta;) hehehe... Síðan fer ég til
baka heim þann 26 desember þar sem ég er að fara að vinna í skýlinu 27 og 28
desember.
Hef ekki mikið meira að segja, er því að vellta fyrir mér að fara að prjóna, já eða eða lesa:)
Endilega skiljið eftir smá kveðju:)
Kv. Lórey sem er að komast í nett jólaskap
Markmið....
En nenni ekki að pæla meira í markmiðum:) Sit núna heima eftir að hafa farið í vinnu kl. 10 í mrg til 13, en ég var að klára að vinna miðvikudaginn af mér:) Ég nefnilega var að fara í lokapróf á miðvikudagskvöldinu og þegar ég var að læra fyrir það daginn áður þá varð ég svo stressuð og hrædd e-ð að ég komst bara yfir fyrstu 4/5 kaflana af 9 þannig að ég fékk að fara eftir að ég bað um að fá að fara fyrr en ég átti að vera búin kl. 18 að vinna og ætlaði að fá að fara um 3 eða 4 leytið en Alla var svo góð og hleypti mér bara heim strax:) Sem bjargaði mér algjörlega því þá gat ég reiknað aftur kafla 8 og 9 og háflan 7 kaflann og gekk bara bara frekar vel á prófinu:) Í þessari viku lauk ég einnig íslensku áfanganum mínum þannig að það er búið að vera nóg að gera:) og þarf ég því um helgina að klára að lesa blessuðu hringadrottinsöguna á ensku svo ég geti klárað þessi verkefni sem eftir eru:)
Ætlunin um helgina var samt að fara á palla ball sem er annaðkvöld en þar sem Ásgeir er að fara í próf á mánudag og þarf því að vera að læra alla helgina og enginn er í eyjum og reyndar ég þyrfti að vera að læra í staðinn þá förum við ekki. En mun þá bara djamma meira næstu helgi þegar Ásgeir ætlar að halda uppá 20 afmælið sitt!;)
Síðan er bara vinna framundan og svo þann 16 fer ég uppá land, en ég útskrifast þann 19:) Ég var að hugsa mér að hafa smá kaffi heima en þar sem það er verið að skipta um pipulagnir heimavið og ekki vitað hvernar það verður tilbúið þá er ég ekki viss hvort að ég muni hafa e-ð kaffi yfir höfuð eða kannski maður hafi það bara í janúar þegar allt verður tilbúið heima. En í augnablikinu er ekki einu sinni eldunaraðstæða heima, það er búið að rifa allt út og svo gengur þetta svo hægt fyrir sér þar sem það þarf að mynda ónýtu pipulagnirnar og það gerist ekki fyrr en á mánudag og er ég því ekki alveg að sjá þetta vera að ganga fyrir jól en er mamma því að spá að fara að leiga bústað og við myndum vera þar um jólin en sú tilhugsun finnst mér vera svolitið skrítið mér langaði bara að vera heima hehe:)
En held að þetta sé bara komið gott, þyrfti að fara að kikja í hringadrottinsöguna:)
Góða helgi:)
2 dagurinn í dag....
Annars er ég bara að fara í bæinn næstu helgi, leikhús á fimmtudaginn og svo þarf ég að finna föt fyrir útskriftina og mér hlakkar ekki til þess þar sem ég hef ekki hgmynd um í hverju ég á að vera.... en það kemur allt í ljós.
En ég mun láta heyra í mér Guðrún;) Algjörlega!=) hehe
En ætla að fara að vinna núna:)
8 vikur í jólin:O .....
Þetta sá ég auglýst fyrir skemmstu og fékk bara nett sjókk, maður vissi alveg að nóvember væri að koma en ekki alveg að það væri svona hræðilega stutt í jólin!:O en þetta gæti verið verra, meina það gæti verið kominn desember núna, hvað myndi maður þá gera? Ég er svona pinku ponsu farin að spá í jólagjafir en ekki mikið hehe, en eitt finnst mér einum of snemmt e-ð, það er að það er farið að auglýsa jólahlaðborð og tónleika og fleira í þeim dúr, ég fékk alveg fiðring í magann um daginn þegar ég heyrði jólalög í auglýsingu þetta var bara einum of snemmt hehe!
Annars var helgin alveg mögnuð! Förum á verslunarmannaballið, þar sem matur, skemmtiatriði og síðan ball með sálinni. Byrjuðum við á því að hittast hjá Svönu um 6 leytið og var voða kosý hjá henni hehe, en vorum svo sótt um 8 og drifið sig niðurí höll þar sem Hildur kom mér alveg helvíti á óvart! :O hehe en það var bara frábært að sjá hana og vera með henni á ballinu, en hún og Arnór ætluðu ekki að koma um helgina hehe en komu svo bara öllum á óvart!:D Síðan var bara étið og drukkið meira, horft á skemmtiatriði og skemmtilegheit:P Síðan misstum við okkur smávegis þegar Trikot byrjaði að spila í dansi og var það bara stemmari! Er ég samt búin að komast að því að mjög mörg af nýju lögunum hjá Sálinni eru annsi róleg...en þeir eiga þó hress lög inná milli:D vorum við komin heim um 4 leytið og biðum í 45 min eftir brauðstöngum en vá það var sko þess virði!

Annars var ég í fríi í gær og einnig á föstudeginum sem var bara mjög ljúft og er að fara að vinna alla hina dagana núna í vikunni, það er minn laugardagur á bókasafninu næstu helgi og svo á ég eina vakt á skýlinu. Ásgeir fer samt uppá land með nýliðunum en eru þau að fara að ganga uppá fjall hehe, ég ætlaði að fara með en vegna vinnu kemst ég ekki en fer þó þarnæstu helgi uppá land:P förum á fimmtudegi því mamma bauð okkur í leikhús
Við förum reyndar ekki með þeim út að borða því Ásgeir er í skólanum og ég verð að vinna en förum bara næst með í það lika:) En þetta er bara orðið ágætt í bili, vinna framundan=)
